Skip to product information
1 of 3

Vendo

Silks Irish Dry Gin

Silks Irish Dry Gin

Regular price 11.990 ISK
Regular price Sale price 11.990 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Gin Írland

Silks Irish Dry Gin

Hágæða írskur gin framleiddur af Boann Distillery í Drogheda í Meath-sýslu á Írlandi. Ginið er handeimað í litlum lotum í 500 lítra koparpotti og hefur fljótt skapað sér nafn meðal bestu írsku gintegunda.

 

Helstu upplýsingar

  • Upprunaland: Írland
  • Framleiðandi: Boann Distillery
  • Styrkleiki: 42% ABV
  • Flaska: 700 ml
  • Stíll: Irish Dry Gin / London Dry stíll

Framleiðsla

Silks er eimað úr 14 jurtaefnum (botanicals). Hefðbundin krydd eru látin liggja í bleyti í 24 klukkustundir áður en eimað er, en viðkvæmari jurtir fara í gegnum vapour infusion-aðferð til að varðveita ferskan ilm og bragð. Ginið er síðan ó-kælisíað (non-chill filtered) og þynnt með djúpvatni úr eigin lind Boann Distillery áður en það er tappað á flöskur.

Einkennandi jurtaefni

  • Einiber
  • Appelsínubörkur
  • Eplablóm úr eplagörðum Cooney-fjölskyldunnar
  • Írskt hunang úr eigin býflugnarækt
  • Ylliblóm (elderflower)
  • Hagþyrnisblóm (hawthorn blossom)
  • Auk 8 annarra jurta sem skapa jafnvægi í bragðinu.

Ilmur og bragð

Ilmur

  • Bjartur sítruskeimur
  • Blómakenndir tónar
  • Fersk einiber

Bragð

  • Silkimjúkt
  • Appelsínubörkur
  • Eplablóm
  • Ferskt epli
  • Klassísk einiber

Eftirbragð

  • Langt og mjúkt
  • Sætur hunangstónn sem jafnar kryddið og sítrusinn.

Meðlæti

Silks hentar sérstaklega vel með:

  • Premium Indian Tonic
  • Sneið af rauðu epli (ráðlagt af framleiðanda)
  • Appelsínuberki
  • Eða í klassískan Martini eða Negroni.

Viðurkenningar

  • Country Winner – World Gin Awards 2025 (London Dry Gin flokkur)
  • Winner – Irish Whiskey Awards (Gin Category) 2022
  • 93 stig – International Wine & Spirit Competition
  • 92 stig (Gold Medal) – Beverage Testing Institute

Til að skoða á vínbúðin.is

View full details